Brimborg og Opel áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi gjaldmiðla m.v. dagsetningu verðlista. Birt kaupverð er með virðisaukaskatti og öðrum opinberum innflutningsgjöldum nema annað sé tekið fram. Verð án sérstaks styrks frá Orkusjóði er fullt verð en verð með styrk frá Orkusjóði gerir ráð fyrir að kaupandi nýti sér styrk sem býðst við kaup á rafbílum árið 2024. Kaupandi greiðir fullt verð en getur átt rétt á styrk til kaupa á rafbíl sem kaupandi sækir um á www.island.is/rafbilastyrkir. Verð bíls og aukabúnaðar, búnaður hans og uppítökuverð eldri bíls er ekki bindandi af hálfu Brimborgar fyrr en kaupandi og söluráðgjafi Brimborgar hafa skrifað undir kaupsamning. Innifalið í kaupverði er nýskráning. Komi til breytinga á lögum um opinber gjöld breytist verð bifreiðarinnar í samræmi. Leiguverð er með virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram og háð tilteknum skilmálum sem má finna á www.brimborg.is. Ábyrgð: Kaupandi hefur rétt samkvæmt íslenskum lögum til að bera fram kvörtun um galla í allt að tvö ár að lágmarki og í sumum tilvikum allt að fimm ár frá afhendingu bifreiðar. Nýir Opel bílar sem keyptir eru af Brimborg njóta að auki 2ja ára framlengdrar verksmiðjuábyrgðar eða samtals 7 ár eða að 140.000 km skv. nánari skilmálum. Raf- og tengiltvinnrafbílar eru að auki með 8 ára rafhlöðuábyrgð, eða að 160.000 km skv. nánari skilmálum. Söluráðgjafar veita nánari upplýsingar um ábyrgðar- og þjónustuskilmála en ítarlegri upplýsingar fylgja í eiganda- og þjónustuhandbók bílsins og á vefsíðu Opel á Íslandi www.opelisland.is