Fara Beint Í Efni
Yfirsýn

Nýr Opel Combo Electric rafsendibíll

Verð frá 4.569.774 kr.

án vsk. með rafbílastyrk

 
Nýr Opel Combo Electric rafsendibíll
Nýi Opel Combo Electric rafsendibíllinn er fulltrúi þess besta sem rafknúinn sendibílafloti Opel hefur að bjóða. Hann byggir á reynslu Opel í framleiðslu atvinnubíla og vandaðri hönnun sem skilar sér í hagkvæmum rafsendibíl með mikla notkunarmöguleika. Opel Combo Electric sameinar þægilega ytri stærð og rúmgott 4,4m³ farmrými með snjöllum lausnum eins og FlexCargo® kerfinu sem gerir þér kleift að flytja lengri hluti þegar þörf krefur.

343 km

Hámarksdrægni, háð þyngd farms o.fl.

3,4 m

Hámarkslengd farms


500.000 króna rafbílastyrkur frá Orkusjóði 

Rafbílar fá rafbílastyrk frá Orkusjóði. Rafmagnssendibílar í ökutækjaflokknum N1 sem eru nýskráðir eftir 1.  janúar 2024 fá greiddan 500.000 kr. rafbílastyrk ef kaupverð er undir 10 millj. kr.  Að auki geta fyrirtæki í atvinnurekstri  innskattað 24% virðisaukaskatt af kaupverðinu ásamt því að innskatta allan rekstrarkostnað sendibílsins ef bíllinn er á rauðum númerum.

 

Kynntu þér málið nánar hjá söluráðgjafa Opel á Íslandi.

 

Allt að 343 km drægni á íslenskri orku
Opel Combo Electric rafsendibíll er fáanlegur með 50 kWh drifrafhlöðu með allt 343 km drægni.
 
 7 ára ábyrgð á bíl og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu
Allir Opel bílar eru í boði með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðenda. 
Þrjár akstursstillingar
Opel Combo Electric er með þremur aksturstillingum; Eco, Normal og Power sem hafa mismunandi áhrif á drægni.  

Hraðhleðsla allt að 100 kW
Það er einfalt og fljótlegt að hlaða Opel Combo Electric rafsendibíl heima, í vinnu og á hraðhleðslustöðvum. Hægt er að fullhlaða á u.þ.b. 5 - 7:30 klukkustundum í öflugri heimahleðslustöð og þú hleður drifrafhlöðuna á u.þ.b. 30 mínútum frá 10 -  80% drægni í 100 kW hraðhleðslustöð.  
Taktu þátt í orkuskiptunum með Opel 
Viðskiptavinir geta stólað á fyrsta flokks gæði og fyrirmyndarþjónustu Opel hjá Brimborg. Framúrskarandi drægni, góður hleðsluhraði, fagleg þjónusta og ráðgjöf við kaupendur og við uppsetningu hleðsluinnviða. Viðskiptavinir njóta sérþekkingar og sérkjara Brimborgar í hleðslulausnum og uppsetningu ásamt sérkjörum á hraðhleðslustöðvum Brimborgar Bílorku. Þannig draga þeir úr neikvæðum áhrifum á umhverfið með umhverfisvænni, íslenskri orku með lágu kolefnisspori. 

Þýsk gæði með lengri ábyrgð 

Þýsk gæði Opel sendibíla eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðanda.