Opel Combo-e Life er 100% hreinn rafbíll sem þú getur hlaðið á auðveldan máta heima, í vinnu eða á hraðhleðslustöðvum. Þú nærð 100% hleðslu á 5-7,5 klst með heimahleðslustöð eða 80% hleðslu á u.þ.b. 30 mínútum í 100 kW hraðhleðslustöð. Opel Combo-e Life er fáanlegur með eins fasa, 7.4 kW innbyggðri hleðslustýringu en fáanlegur eins fasa 7,4 kW eða þriggja fasa, 11 kW innbyggðri hleðslustýringu.
Hér er hlekkur á helstu upplýsingar um þá þætti sem gott er að hafa í huga varðandi hleðslustöðvar og hleðsluhraða. Hleðslutími getur verið breytilegur af margvíslegum ástæðum t.d. eftir því hvernig tengillinn er, eftir því hversu öflug hleðslustöð er notuð og hversu öflug innbyggð hleðslustýring bílsins er. Einnig hefur hitastig rafhlöðu og útihitastig ásamt álagi hleðslustöðvarinnar áhrif. - Smelltu hér til að lesa meira.
Söluráðgjafar Opel veita alla ráðgjöf um hleðslu og uppsetningu hleðslustöðvar og útvega hleðslustöðvar og uppsetningu ef óskað er. Nánar um hleðslustöðvar og uppsetningu hér - Smelltu hér til að lesa meira.
Sérfræðingar mæla með hleðslu rafbíla með heimahleðslustöðvum. Venjulegir heimilistenglar eru ekki ætlaðir til langtimahleðslu.
Þú getur á auðveldan hátt tímasett upphaf hleðslu í MyOpel® appinu eða skoðað áætlaðan hleðslutíma á skjá ásamt því að setja forhitarann í gang svo hann sé heitur og fínn þegar þú vilt nota hann.
Öflugri hleðslustöð heima eða í vinnu
Við mælum með að þú setjir upp hleðslustöð heima fyrir eða í vinnu sem eykur hleðsluhraðann til mikilla muna. Hleðsluhraðinn miðast við 7,4 kW hleðslustýringu bílsins er 7,5 klst eða 5 klst með 11kW innbyggðri hleðslustýringu bílsins sem er valbúnaður.
Hraðhleðsla
Næstum tóma drifrafhlöðuna má hlaða á um það bil 30 mínútum í 80% hleðslu í 100 kW hleðslustöð. Hraðhleðslustöðvar er víða að finna á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.
Sérfræðingar mæla með hleðslu rafbíla með heimahleðslustöðvum. Venjulegir heimilistenglar eru ekki ætlaðir til langtímahleðslu.
* Hleðslutími getur verið breytilegur eftir hitastigi rafhlöðu og útihitastigi ásamt álagi hleðslustöðvarinnar. Söluráðgjafi Opel veitir þér ráðgjöf um heimahleðslustöðvar.
Brimborg hefur tekið saman ítarlegt efni um allt sem viðkemur rafbílum. Smelltu á hnappana hér fyrir neðan og kynntu þér málið.